Að loknu grunnskólanámi um vorið fékk hann vinnu við löndun og aðra skipaafgreiðslu á Norðurbakkanum í Hafnarfirði. Um haustið fékk hann vinnu í hraðfrystihúsi BÚH og starfaði þar næstu tólf mánuði. Kristbergur áttaði sig á því að teiknikunnáttu hans var ábótavant og að hann þyrfti á tilsögn fagmanns að halda ef hann ætlaði að standast inntökupróf í MHÍ. Hann tók það til bragðs að sækja kvöldnámskeið í Myndlista-og Handíðaskólanum allan veturinn 1978-´79. Kennari var Örn Þorsteinsson myndlistarmaður.