Ljóðmyndir - Jökultónar 12. september 2026 - 3. október 2026 , Gallerí Fold


Laugardaginn 12. september opnar Kristbergur Ó. Pétursson sýningu sína Ljóðmyndir - Jökultónar í Gallerí Fold.
Í málverkum Kristbergs fer fram stefnumót myndmáls og ritmáls í tilraun til að brjóta upp mörk milli þess sem er sýnt og þess sem er lesið. Málverkin eru sem fyrr áferðarrík og unnin í jarðtengdum litaskala og nú birtast í þeim orð og setningar sem mara í hálfu kafi í ölduróti málningarinnar.
Kristbergur notar sín eigin ljóð sem efnivið í málverkunum. Árið 2011 hóf hann að fást við ljóðlist, hefur gefið út eina ljóðabók og er með aðra í vinnslu. Árið 2022 hóf hann að yrkja hækur eftir hvatningu frá Kristjáni heitnum Guðmundssyni myndlistarmanni og hefur síðan einbeitt sér að þessu knappa ljóðformi.
Kristbergur sýnir einnig röð vatnslitamynda af Snæfellsjökli. Hækur og vatnslitamyndir eiga að hans mati sameiginlega þætti, svo sem gegnsæi, nægjusemi og aga og er jökullinn í margvíslegri birtu og litatónum drjúgt myndefni til að vinna með.
 
Kristbergur útskrifaðist úr Myndlista- og handíðaskóla Íslands árið 1983 og hélt svo í framhaldsnám til Hollands. Þar stundaði hann nám við Rijksakademie í Amsterdam og útskrifaðist þaðan árið 1988.
Ljóðmyndir - Jökultónar er fyrsta einkasýning Kristbergs í Gallerí Fold.
 
 
In Kristbergur's paintings, a meeting of visual and written language takes place in an attempt to break down the boundaries between what is shown and what is read. The paintings are as before rich in texture and done in an earthy color scale, and now there appear words and sentences that languish half-submerged in the turmoil of the paint.
Kristbergur uses his own poems as material in these paintings. In 2011 he began to write poetry, has published one book of poems and another book is under way. In 2022 he began to compose haikus at the encouragement of the late artist Kristján Guðmundsson and has since focused on this concise poetic form.
Kristbergur also shows a series of watercolors of Snæfellsjökull. In his opinion, haiku and watercolors have several elements in common, which are transparency, contentment and discipline. The glacier is a rich subject to work with and is shown in its various light and colors.
 
Kristbergur graduated from the Icelandic school of Arts and Crafts in 1983 and from the Rijksakademie in Amsterdam in 1988.
Ljóðmyndir - Jökultónar is his first solo exhbition in Art Gallerí Fold.
 
Haiku málverk 23

Haiku málverk 23

Blýanturinn fauk

en ég fangaði storminn

í nettri skissu.

 

Blönduð tækni  

60x45 cm

Haiku málverk 07

Haiku málverk 07

Aðeins þegar ég

nem staðar blika stjörnur

en mér liggur á

 

Blönduð tækni  

85x64 cm

Haiku málverk 08

Haiku málverk 08

Málaratrönur

á útsýnispallinum

yfir alheiminn.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 05

Haiku málverk 05

Strigi á trönum

í skugga af háu tré

með djúpar rætur.

 

Akrýl   Gouache   Gesso  

85x65 cm

Haiku málverk 20

Haiku málverk 20

Þó maður máli

óvart útfyrir strigann

út í bert loftið.

 

Blönduð tækni  

55x40 cm

Haiku málverk 21

Haiku málverk 21

Hæ stóri maður,

hvíslar strá mér við eyra,

geturðu fært þig?

 

Blönduð tækni  

55x40 cm

Haiku málverk 13

Haiku málverk 13

Teikning eftir barn

eða fullorðinn, um það

má lengi deila.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 14

Haiku málverk 14

Engin bílskúrshurð

málverkið mitt en leynir

á sér sjáðu til.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 15

Haiku málverk 15

Útimálarinn

gerir góðviðrissamning

við veðurguðinn.

 

Blönduð tækni  

85x64 cm

Haiku málverk 16

Haiku málverk 16

Tilveran máluð

ljósum litum og dökkum

á víxl og í bland.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 18

Haiku málverk 18

Hvernig ein skissa

verður að engu eða

gerir mig hissa.

 

Blönduð tækni  

30x50 cm

Haiku málverk 19

Haiku málverk 19

Undir nálinni

Síðdegi innipúkans

það eina sm snýst.

 

Blönduð tækni  

70x55 cm

Haiku málverk 22

Haiku málverk 22

Einkaritarinn

stakk mig af út um gluggann

á Pegasusi.

 

Blönduð tækni  

55x45 cm

Haiku málverk 25

Haiku málverk 25

Frumvarpshöfundar

höggva fiðlur í eldinn

í kuldakasti.

 

Blönduð tækni  

60x45 cm

Haiku málverk 09

Haiku málverk 09

Líf í fullri lengd

lesið í augum konu

á háum aldri.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 10

Haiku málverk 10

Svipur gamals manns

með innihaldslýsingu

og dagsetningu.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 11

Haiku málverk 11

Teikning af húsi

frá bernsku, gömul minning

kemur til dyra.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 12

Haiku málverk 12

Logi á kerti

flöktir mjúklega í takt

við sjávarföllin.

 

Blönduð tækni  

85x65 cm

Haiku málverk 03

Haiku málverk 03

 Sum okkar glansa

í birtu meðan önnur

glóa í myrkri.

 

Akrýl   Gouache  

85x65 cm

Haiku málverk 24

Haiku málverk 24

Vistkerfin hrynja,

farðu vel með súrefnið,

það er í sameign.

 

Blönduð tækni  

60x35 cm

Haiku málverk 02

Haiku málverk 02

 Í eilífri bið

eftir betri tíð á ég

nóg fyrir kaffi.

 

Akrýl   Blönduð tækni   Gouache  

85x65 cm

Haiku málverk 01

Haiku málverk 01

 Allir eiga leik

eða tvo um ævina

á heimavelli.

 

Strigi   Blönduð tækni  

85x65 cm



Kristbergur Óðinn Pétursson
Sími: +354 694 8650
kbergur@mi.is